Innlent

Kanna rennsli úr göngunum

Starfsmenn Náttúrustofu Austurlands vinna nú rannsókn á áhrifum aukins vatnsrennslis úr göngunum við Kárahnjúka á Glúmsstaðadalsá. Mælingar á mengun eiga sér enn stað og er búist við að niðurstaðan liggi fyrir eftir mánuð.

Glúmsstaðadalsá var ekki inni í upprunalegu umhverfismati vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka. Á fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands í vor kom fram að meiri aur bærist í ána en fyrirséð hafi verið. Ýmsir erfiðleikar hafi komið upp og ráðstafanir gerðar en þær hafi ekki dugað til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×