Innlent

Lögbundið eftirlit aukið

FERÐALÖG Eftirlit með rekstri ferðaskrifstofa verður aukið.
FERÐALÖG Eftirlit með rekstri ferðaskrifstofa verður aukið.

131 fyrirtæki hefur sótt um leyfi til að reka ferðaskrifstofur en það er Ferðamálastofa sem veitir leyfin. 107 umsóknir hafa fengið jákvæða afgreiðslu og 81 leyfi hefur verið gefið út.

Ferðamálastofa hefur á undanförnum mánuðum haft samband við aðila sem stunda rekstur sem gæti verið leyfisskyldur og í kjölfar þess hafa ýmsir þessara aðila sótt um leyfi fyrir rekstri.

Í framhaldinu mun Ferðamálastofa leggja meiri áherslu á lögbundið eftirlit með rekstri ferðaskrifstofa til að tryggja að rekstur þeirra sé eingöngu í höndum aðila með tilskilin leyfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×