Innlent

Sex áfram í gæsluvarðhaldi

Gæsluvarðhald var í gær framlengt yfir sex mönnum vegna tilrauna til stórfellds fíkniefnasmygls. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði þá alla til að áframhaldandi gæsluvarðhalds til 6. október.

Fjórir mannanna voru handteknir í apríl með tíu kíló af hassi og 15 kíló af amfetamíni, sem þeir höfðu falið í bensíntanki bifreiðar. Tveir Litháar voru svo teknir í júlí með tólf kíló af amfetamíni sem falin voru í bifreið sem kom með Norrænu Seyðisfjarðar. Þá sitja nú í gæsluvarðhaldi karl og kona sem tekin voru í Leifsstöð í vikunni með tæplega hálft kíló af kókaíni.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×