Innlent

Geri hreint fyrir sínum dyrum

Steingrímur J. Sigfússon Formaður VG.
Steingrímur J. Sigfússon Formaður VG.
stjórnmál Vinstri hreyfingin - grænt framboð krefst þess að bæði fyrrverandi og núverandi iðnaðarráðherrar geri hreint fyrir sínum dyrum hvað varðar meðferðina á greinargerð Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings um Kárahnjúkavirkjun. Í yfirlýsingu þingflokks VG segir að fyrir liggi að greinargerðinni hafi verið leynt fyrir alþingismönnum. Ekki verður annað séð en stjórnvöld hafi þannig vísvitandi leynt Alþingi mikilvægum upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir við Kárahnjúka, segir í ályktuninni. Er þess jafnframt krafist að þing verði kallað saman ef með þarf.- bþs



Fleiri fréttir

Sjá meira


×