Innlent

Lofað hótelvist en var svikinn

abraham shwaiki
abraham shwaiki

i Abraham Shwaiki, sem vísað var frá Ísrael í fyrradag, lenti á Íslandi á þriðjudag.

Abraham segir að við komuna til Ísrael hafi lögregla tekið hann höndum og logið því að þeir ætluðu með hann á hótel. „Svo fóru þeir með mig á lögreglustöð. Ekki beint fimm stjörnu hótel.“ Þegar hann yfirgaf Ísrael var Abraham sagt að hann gæti aldrei komið þangað aftur.

Utanríkisráðuneytið hefur sent fyrirspurn til ísraelskra yfirvalda þar sem óskað er eftir lýsingu á málsatvikum og svörum við því hvort Abraham megi snúa aftur til Ísraels. Engin svör höfðu borist þegar blaðið fór í prentun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×