Innlent

Sautján ára velti bifreið

Sautján ára ökumaður missti stjórn á bifreið sinni um þrjú leytið í nótt á Eyjafjarðarbraut eystri við bæinn Fellshlíð, um 25 kílómetra frá Akureyri, með þeim afleiðingum að hún valt.

Svo virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á bílnum í lausamöl með fyrrgreindum afleiðingum. Bíllinn fór tvær veltur og endaði utan vegar á þakinu.

Tvennt var í bílnum auk ökumanns, stúlka og piltur á sextánda ári. Þau voru flutt til minni háttar aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, en þau voru marin eftir bílbeltin. Bíllinn er talinn gjörónýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×