Innlent

Sextíu hús í stað sex hundruð

Við Úlfljótsvatn
Undirbúningur að byggingu sumarhúsabyggðar við Úlfljótsvatn hefur hingað til kostað nokkra tugi milljóna króna.
Við Úlfljótsvatn Undirbúningur að byggingu sumarhúsabyggðar við Úlfljótsvatn hefur hingað til kostað nokkra tugi milljóna króna.

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur stefnir að því að draga verulega úr sumarhúsabyggð á Úlfljótsvatni.

Samningaviðræður hafa átt sér stað milli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, stjórnarformanns Orkuveitunnar, og Þorgils Óttars Mathiesen, framkvæmdastjóra fasteigna­félagsins Klasa, síðustu vikur. Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir í næstu viku.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins er rætt um að draga úr fyrirhugaðri frístundabyggð við Úlfljótsvatn þannig að gert verði ráð fyrir lóðum undir fimmtíu til sextíu hús í stað sex hundruð sumarhúsa.

Undirbúningur að byggingu sumarhúsabyggðarinnar hefur þegar átt sér stað fyrir tugi milljóna króna. Ekki er ljóst hvað það kostar Orkuveituna að hætta við eða breyta samningum um byggðina og draga úr fyrirhuguðum framkvæmdum en búast má við að upphæðin skýrist á næstunni. Landið við Úlfljótsvatn er í eigu Orkuveitunnar. Það er metið á hundrað og fimmtíu milljónir króna og var lagt inn í Frístundabyggð Úlfljótsvatni ehf., sem er sameiginlegt félag OR og Klasa. Klasi hefur lagt fram jafnháa upphæð.

Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skátahreyfingarinnar, segir að skátahreyfingin verði afskaplega ánægð ef dregið verður úr fyrirhugaðri byggð.

Við erum ekki alfarið á móti einhverri byggð svo framarlega sem hún verður í sátt við náttúruna og landið. Okkur er líka annt um að fá frjálsan aðgang að óheftri náttúru í kringum okkur þannig að ekki verði mikið að okkur þrengt, segir hann.

Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, staðfestir að hann hafi verið að vinna að þessu máli í margar vikur. Hann hefur áður sagt að hann telji það ekki í verkahring orkufyrirtækis að byggja frístundabyggð við Úlfljótsvatn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×