Innlent

Tveir teknir með fíkniefni

Ferðalangar sem reyndu að smygla inn umtalsverðu magni af örvandi efnum á mánudag sitja nú í gæsluvarðhaldi, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Þeir voru stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins þar sem efnin fundust í fórum þeirra.

Lögreglan verst allra frétta þar sem rannsókn sé á frumstigi og vill hvorki tjá sig um tegund né magn efnanna né fjölda þeirra einstaklinga sem sitja inni.

Auk þessara nýteknu sitja nú ellefu manns í gæsluvarðhaldi vegna tilrauna til stórfellds smygls í þremur málum.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×