Innlent

Undarlegt að þurfa að bíða

Jón Ásgeir Jóhanesson
Jón Ásgeir Jóhanesson

Jón Ásgeir Jóhannesson segir það hafa verið einkennilegt að þurfa að bíða eftir því svo vikum skipti hvort endurákært yrði vegna fyrsta liðsins eða ekki.

Ég hef frá upphafi sagt að þessi ákæruliður, sem oft hefur verið kenndur við 10-11 verslanirnar, snúist um viðskipti og ekkert annað. Þetta hafa dómstólar staðfest bæði héraðsdómur og Hæstiréttur. Það var því einkennilegt að þurfa að sitja undir því svo vikum skipti að Sigurður Tómas Magnússon segðist vera að velta því fyrir sér að ákæra í þriðja sinn af þessu tilefni.

Því verður vart trúað að slíkt hafi hann hugleitt í alvöru eftir þá dóma sem gengið höfðu, sagði Jón Ásgeir í tilkynningu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×