Innlent

Smyglaði til landsins áfengi

 Tæplega fimmtugur maður hefur verið ákærður fyrir að hafa smyglað hingað til lands 42 lítrum af vodka, 3600 vindlingum og 3,5 lítrum af vískíi með skipinu Skógafossi. Tollverðir fundu varninginn við leit í skipinu 6. janúar 2005. Viku síðar fundust 1800 ­vindl­ingar á heimili mannsins auk lítilræðis af áfengi. Talið er að þessum varningi hafi verið smyglað til landsins með Skógafossi. Þess er krafist af hálfu saksóknara að ákærði verði dæmdur til refsingar fyrir brot á tollalögum. Málið verður tekið til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×