Innlent

Efld fræðsla í grunnskólum

Undirritaður hefur verið samningur milli Umferðarstofu og fjögurra grunnskóla um eflingu umferðarfræðslu í grunnskólum landsins.

Grundaskóli á Akranesi mun stýra verkefninu en einn skóli úr hverjum landsfjórðungi mun síðan sjá um að miðla upplýsingum til annarra skóla á sínu svæði. Náið samstarf verður á milli skólanna fjögurra um gerð fræðsluefnis og skipulagningu verkefnisins. Með þessari samvinnu er stefnt að því að efla til muna umferðarfræðslu til ungmenna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×