Innlent

Hætti sundinu vegna myrkurs

Listamaðurinn og sundkappinn Benedikt Lafleur þurfti að hætta sundi í öðrum áfanga hring­sunds síns um Reykjavík í gær. Að sögn hans var myrkur og skyggni farið að hamla för hans og björgunar­sveitarmenn gátu ekki tryggt öryggi hans lengur.

Benedikt heldur til Englands til æfinga á þriðjudaginn fyrir þreksund þvert yfir Ermarsundið. „Sundin tvö í gær veittu mér ómetan­lega reynslu og í raun nýja þekkingu sem mun reynast mér dýrmæt í Ermarsundinu. Ég fer því reynslunni ríkari og mun sáttari en áður út í slaginn við Ermarsundið,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×