Innlent

Eltu lögbrjóta uppi á hlaupum

Ökumaður og farþegar bíls reyndu að stinga lögreglu af á hlaupum í gær en tókst ekki. Eltingaleikurinn hófst þegar lögregla mældi bíl þeirra á níutíu og níu kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er sextíu kílómetrar á klukkustund. Ökumaður virti ekki stöðvunarmerki lögreglu heldur gaf í og reyndi að stinga lögreglu af.

Hann missti stjórn á bílnum og hafnaði á staur. Eltingaleiknum lauk ekki því bílstjóri og farþegar tóku til fótana. Lögreglan reyndist sneggri og náði fólkinu fljótlega. Ekki leikur grunur á að bílstjóri hafi verið ölvaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×