Innlent

Segir ákvæði í kjara- samningum vera lögmæt

Magnús Norðdahl
Magnús Norðdahl

Elín skrifaði grein þess efnis sem birtist í Tímariti lögfræðinga í júlí. Mannréttindadómstóll Evrópu tók fyrir mál Dana í janúar 2006 og komst að þeirri niðurstöðu að ákvæði í kjarasamningum, sem skylda starfsmenn til að vera í tilteknum stéttarfélögum, sem Elín kallar aðildarskylduákvæði, brytu gegn rétti starfsmanna til félagafrelsis. Elín telur að dómurinn hafi áhrif á forgangsréttarákvæði sem algeng eru í íslenskum kjarasamningum en þau kveða á um að félagsmenn viðkomandi stéttarfélags hafi forgang til vinnu á félagssvæði þess.

„Ég er hreint ekki sammála henni og tel að þetta sé fyrst og fremst hugarleikfimi og vangaveltur hennar. Kjarninn í málinu er sá að hvorugur þessara dóma fjallar um forgangsákvæði, heldur útilokunar­ákvæði, og það er ekki hægt að horfa framhjá þeirri staðreynd,“ segir Magnús Norðdahl. „Í útilokunarákvæðum, sem Elín kallar aðildarskyldu­ákvæði ranglega, lofar atvinnurekandi að ráða engan í vinnu nema að hann sé í viðkomandi stéttarfélagi. Dómurinn gekk svona langt vegna þess að mennirnir sem kærðu misstu starfið vegna ákvæðisins. Ákvæði um forgangsréttarákvæðið eru allt annars eðlis. Á Íslandi mæla þau fyrir um að félagsmenn í viðkomandi stéttarfélagi skulu hafa forgang um starf ef að þeir eru jafnhæfir og aðrir. Auk þess geta fleiri en eitt og fleiri en tvö stéttar­félög verið með forgangsrétt í samningum, svo því er í raun sjaldan beitt,“ segir Magnús.

Magnús segir einnig að dómurinn hafi ekkert að segja um innheimtu stéttarfélagsgjalda af launum starfsmanna, sem ekki eru meðlimir í stéttarfélögum. „Verkalýðsfélögum er falið mjög mikilvægt hlutverk fyrir alla, hvort sem þeir eru í félaginu eða ekki. Þeir sem borga hluta launanna í stéttarfélag njóta sömu verndar sem kjaratryggingar fjalla um. Þú ræður því hvort að þú ert félagsmaður en þú ræður því ekki hvort þú borgar þessi gjöld, frekar en að þú getur ákveðið að borga ekki skatt til almannatrygginga af því að þú ert aldrei veikur,“ segir Magnús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×