Innlent

Segir stjórnvöld undir þrýstingi bænda

Halla 
Tómasdóttir
Halla Tómasdóttir

Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, vill að hvers konar verndar­tollar og innflutningshöft á landbúnaðarvörum verði afnumin. Ákveði þjóðin að styðja íslenskan landbúnað eigi það að gerast með beinum greiðslum en ekki í gegnum vöruverðið.

Viðskiptaráðið styður hugmyndir um afnám vörugjalda af matvöru en Halla vill ganga lengra. „Ég vil að hér sé frjáls markaður þar sem vörur hvaðan sem er keppa á samkeppnisgrundvelli. Ég er þeirrar skoðunar að íslensk vara sé það góð að ekki þurfi að óttast samkeppni sem aðeins byggir á verði,“ sagði Halla í samtali við Fréttablaðið.

Hún bendir á að gæði íslenskrar búvöru séu mikil og þegar hafi sýnt sig að verslun með lífrænar vörur er talsverð þrátt fyrir að þær séu dýrari en aðrar.

Nýlega strönduðu viðræður Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um ríkisstuðning við landbúnað en fylgismenn afnáms verndartolla bundu nokkrar vonir við þær viðræður. Halla segir miður að þær hafi siglt í strand en það þurfi ekki að koma á óvart þar sem málið sé hápólitískt og stuðningur við landbúnað atvinnustefna í mörgum löndum.

„Ég er hrædd um að fólk sé mjög hrætt við að afnema verndar­tollana og finnst það reyndar skiljanlegt þar sem það er mikill þrýstingur og mörg atkvæði að sækja í þann hóp sem þrýstir vel,“ segir Halla, spurð um mat sitt á afstöðu íslenskra stjórnvalda til verndartolla og annarrar ríkisverndar á landbúnaði. Hún segir því litlar líkur á að verndartollar verði lækkaðir eða afnumdir í bráð.

„Við eigum að setja okkur það að markmiði að ganga alla leið. Við eigum ekki að vera hrædd við að stíga skref í átt til afnáms allra verndartolla.“

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hafnar bollaleggingum Höllu um þrýsting bændanna á stjórnmálamenn. „Þetta er mjög rangt,“ segir hann og bendir á að stuðningur ríkisins við bændur hafi minnkað stórlega á um­liðnum árum. „WTO-viðræðurnar stöðvuðust ekki út af Íslandi heldur vegna Bandaríkjanna stóru og Evrópusambandsins stóra. Það halda allir utan um sinn land­búnað.“

Þá varar Guðni við hugmyndum um að beingreiðslur verði auknar í stað tollverndar. „Það eru falsspámenn sem tala um að bera peninga á bændur, líkt og Alþýðusambandið og fleiri spekingar eru nú að gera. Slíkt væri slys.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×