Innlent

Mýrin fær 45 milljónir

Mýrin Fær 45 milljónir í styrk
Mýrin Fær 45 milljónir í styrk

Kvikmyndamiðstöð Íslands tilkynnti í gær hvað kvikmyndir hefðu fengið styrki eða vilyrði fyrir styrk úr sjóð þess. Fjórar kvikmyndir eru nú í tökum eða í lokastigi og fengu þær allar styrk. Mýrin eftir Baltasar Kormák fékk 45 milljónir, Köld Slóð í leikstjórn Björns Brynjólfs Björnssonar fékk 40 milljónir og kvikmynd Gunnars Björns Guðmundssonar, Astrópía, fékk 37 milljónir. Þá fékk framleiðslufyrirtækið Zik Zak sjö og hálfa milljón fyrir þátt sinn í kvikmynd Lars Von Trier, The Boss of it All.

Níu kvikmyndir fengu vilyrði fyrir framleiðslustyrk og ber þar hæst Óvinafagnaður í leikstjórn Friðriks Þór Friðrikssonar en hún fær vilyrði uppá 72 milljónir íslenskra króna. Veðramót eftir Guðný Halldórsdóttur fær vilyrði uppá 44 milljónir en tökur á henni eiga að hefjast í lok ágúst. Myndin fjallar um þrjú ungmenni sem halda norður í land til að sjá um vistheimili fyrir ungmenni. Með aðalhlutverkin fara þau Ugla Egilsdóttir, Tinna Hrafnsdóttir, Hilmir Snær Guðnason og Björn Hlynur Haraldsson.

Í sjónvarpsflokknum fær glímukappinn Vernharður Þorleifsson vilyrði uppá átta milljónir vegna sjónvarpsþáttarins Venni Páer og þá vekur athygli að þeir Sigurjón Kjartansson og Óskar Jónasson fá 375 þúsund króna handritastyrk fyrir sjónvarpsþáttinn Pressan.

Í flokki heimildarmynda fá þeir Andri Snær Magnason og Ólafur Sveinsson vilyrði uppá sjö milljónir fyrir kvikmynd sína Álver, vikrjanir og ágóði. auk þess sem True North fær tólf milljóna króna styrk fyrir myndina um ferðalag Sigur Rósar á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×