Innlent

Svartir sauðir sem ekki láta sér segjast

Gunnar sigurjónsson
Gunnar sigurjónsson

Lögreglan í Kópavogi mældi vélhjól á 168 kílómetra hraða við Smáralind klukkan hálf níu í fyrrakvöld þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar á klukkustund. Þegar lögreglumenn hugðust veita því eftirför gaf ökumaðurinn í og tókst að stinga þá af. Lögreglan náði númeri hjólsins og leitar nú mannsins.

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði tvo menn með stuttu millibili á Sæbraut skömmu eftir miðnætti, annan á fimmtugsaldri á 148 kílómetra hraða og hinn á fertugsaldri á 142 kílómetra hraða. Hámarkshraði á götunni er 60 kílómetrar á klukkustund og voru mennirnir færðir á lögreglustöð til skýrslutöku og sviptir ökuréttindum.

Þá veitti lögreglan í Borgarnesi tveimur vélhjólamönnum eftirför á Vesturlandsvegi í fyrri­nótt, en að sögn varðstjóra embættisins voru báðir á vel yfir 200 kílómetra hraða. Annar mannanna náðist en hinn slapp úr greipum lögregl­unnar.

Sama kvöld fór fram gríðarlega fjölmennur fundur vélhjólamanna í Laugardalshöll þar sem rætt var um ímynd þeirra og hættur glannalegs aksturs. Að loknum fundi fór stór hópur í Heiðmörk þar sem haldin var minningarathöfn um einn þeirra þriggja manna sem látist hafa í vélhjólaslysum það sem af er ári.

Sá sem ók í Kópavogi var eltur á sama tíma og fundurinn átti sér stað. Ekki liggur fyrir hvort mennirnir sem teknir voru í Reykjavík höfðu verið viðstaddir minningarathöfnina, en Dagrún Jónsdóttir, einn skipuleggjenda hennar, segist ekki í vafa um það. „Þeir voru örugglega þar.“ Dagrún segir að vélhjólafólk líti á athæfi mannanna sem óvirðingu við málstaðinn. „Við erum ægilega svekkt. Við héldum að við værum að ná til fólks en það eru greinilega svartir sauðir sem ekki láta sér segjast.“

Gunnar Sigurjónsson, sóknarprestur í Digraneskirkju og vélhjólamaður, sem flutti ræðu á fundinum, er hissa og harðorður í garð mannanna. „Ég lít bara á þetta sem hreina og klára hryðjuverkastarfsemi gagnvart okkur mótorhjólamönnum. Þetta er algjörlega í andstreymi við það sem við vorum að gera í Laugardalshöllinni og setur svartan blett á alla mótorhjólamenn, þrátt fyrir að staðreyndin sé að flestir haga sér eins og menn. Við erum orðin verulega þreytt á þessu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×