Innlent

Líkamsárás og flugeldaskot

Rúmlega þrítugur maður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og var málið var þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í gær.

Manninum er gefið að sök að hafa veist að öðrum manni í apríl og slegið hann hnefahögg í andlitið, með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi hlaut skurð á hægri augabrún og glóðarauga.

Þá var í gær þingfest í dómnum mál á hendur rúmlega tvítugum manni fyrir að hafa í mars skotið upp nokkrum flugeldum við sumarhús í Svignaskarði í Borgarfirði, án þess að hafa tilskilið leyfi lögreglustjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×