Innlent

Með alla útlimi krosslagða

Ingibjörg Kristleifsdóttir
Ingibjörg Kristleifsdóttir

"Aðalfrétt dagsins í dag er að það eru akkúrat 23 ár síðan tvíburarnir mínir fæddust. Þeir eru því orðnir einu ári eldri en ég var þegar ég eignaðist þá," segir Ingibjörg Kristleifsdóttir, leikskólastjóri Klambra. Á afmælisdeginum fær hún annan tvíburann í heimsókn enda eru þeir "orðnir karlar í sitt hvoru landinu".

Ingibjörg er annars hæstánægð með sumarið enda er hún búin að nýta það vel í alls konar útiveru. "Sumarið er bara hálfnað en samt búið að vera svo skemmtilegt og sólríkt. Ég er búin að ganga Síldarmannagötu, upp á Arnarvatnsheiði og svo fann ég Paradís á Norðfirði," segir hún og bætir við að einnig sé nauðsynlegt að komi fram að hún hafi gengið á Strút síðastliðinn laugardag. "Ég segi öllum sem ég hitti það svona sjö sinnum."

Leikskólinn Klambrar er að fara aftur af stað eftir sumarleyfi og í vikunni fóru börn og starfsfólk saman í hvalaskoðun. "Við sáum náttúrulega bara nokkra sporða, en eftir á erum við öll alveg viss um að við sáum hvali sem eru stærri en kastalinn í garðinum." Ingibjörg hefur annars í nógu að snúast við undirbúning vetursins á Klömbrum. "Við erum með alla útlimi krosslagða í von um að manna allar stöðurnar í haust." Ingibjörg segist þó ekki vera kvíðin heldur full tilhlökkunar fyrir veturinn. "Einhver sagði að leikskólastjórar héldu að kvíði væri eðlileg tilfinning. Við erum núna að senda kvíðann út í hafsauga og taka tilhlökkunina inn því búið er að ráða svo mikið úrvalslið hér til starfa. Svo er þetta bara alveg að koma," segir Ingibjörg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×