Innlent

Auglýsir eftir ábendingum

Fyrir viku var brotist inn í íbúðarhús á Hvoli í Saurbæ í Dalasýslu og þaðan stolið verðmætum að andvirði rúmri milljón króna.

Á meðal þess sem var stolið voru ýmsir persónulegir munir eins og skartgripir og silfurskeiðasafn auk þess sem töluvert af raftækjum var tekið ófrjálsri hendi.

Lögreglan á Búðardal biðlar til allra þeirra sem kunna að hafa upplýsingar um mannaferðir við húsið frá hádegi þriðudaginn 18. júlí og til klukkan fimm síðdegis daginn eftir, að hafa samband við lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×