Innlent

Með frjáls viðskipti að leiðarljósi

Alþjóðaviðskiptastofnunin, WTO, er alþjóðleg stofnun sem setur reglur fyrir hnattræn viðskipti og leysir ágreiningsmál milli aðildarríkja. Aðildarríkin eru svo bundin um þrettán samningum stofnunarinnar. Höfuðstöðvar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar eru í Genf í Sviss. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar er Pascal Lamy, sem tók við 1. september 2005. Sádi-Arabía gekk í stofnunina í desember í fyrra og þar með eru aðildarríkin orðin 149 talsins. Stofnunin var sett á fót árið 1995 eftir áratuga deilur um stöðu ITO, forvera WTO í heimsviðskiptum. Hvernig starfar WTO?Markmið stofnunarinnar er að lækka tolla og skipa grundvöll til umræðu milli ríkja um viðskipti. Kennisetningar stofnunarinnar eru fimm talsins. Þær fjalla um að viöskipti skuli vera laus við fordóma, klíkuskap og misrétti gegn erlendum vörum og þjónustu. Ávallt skuli reynt að lækka tolla og hafa viðskiptaumhverfið gagnsætt, svo markaðir standi opnir. Ýta skuli undir samkeppni og stuðla að aðstoð við þróunarríki. Meðlimir samtakanna skulu einnig reyna að veita hver öðrum eins góð viðskiptakjör og hægt er. Hvað segja gagnrýnendur WTO?Frá stofnun hefur Alþjóðaviðskiptastofnunin hlotið talsverða gagnrýni frá hreyfingum sem berjast gegn óréttlátri hnattvæðingu. Stofnunin hefur verið sökuð um að hygla stórum, ríkum þjóðum og alþjóðlegum stórfyrirtækjum. Lítil ríki hafi lítil sem engin völd innan stofnunarinnar og stærri þjóðirnar hugsi bara um eigin hag. Einnig skipti umhverfis-, heilbrigðis- og öryggis­mál litlu máli innan stofnunarinnar. Verst sé þó sú hræsni stórveldanna að viðhalda háum tollum og vernda landbúnað sinn á meðan þróunarríki séu neydd til að opna markaði sína.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×