Innlent

Færðu sig við handtökuhótun

mótmælaseta Mótmælendur hindruðu för starfsmanna Arnarfells. Þeir færðu sig fyrst þegar lögregla hótaði handtökum.
mótmælaseta Mótmælendur hindruðu för starfsmanna Arnarfells. Þeir færðu sig fyrst þegar lögregla hótaði handtökum.

Á fjórða tug mótmælenda settust á veginn að Hraunaveitu rétt norðan Eyjabakkasvæðisins og lokuðu honum þannig um hádegið í gær og færðu sig hvergi fyrr en lögregla hótaði þeim handtöku. Starfsmenn Arnarfells, sem er verktaki við Hraunaveitu og vinnur nú að því að reisa Ufsarstíflu á svæðinu, komust hvorki til né frá vinnusvæðinu frá hádegi þar til klukkan fjögur síðdegis.

Mótmælendurnir voru bæði erlendir sem íslenskir, mestmegnis ungt fólk. Í tilkynningu sem mótmælendurnir sendu frá sér í gær segir að þeir hafi komið saman á svæðinu til að vekja athygli á því að unnið væri að stíflu á Eyjabakkasvæðinu þrátt fyrir það að 45 þúsund Íslendingar hefðu skrifað undir áskorun til stjórnvalda um friðun Eyjabakka. Með þeim aðgerðum verði tilkomumiklir fossar í Jökulsá í Fljótsdal þurrkaðir upp.

Lögreglan á Seyðisfirði og björgunarsveit kom á staðinn og fylgdi fólkinu út af vinnusvæðinu. Fyrir utan það hversu þaulsætnir mótmælendurnir voru fóru mótmælin friðsamlega fram og var enginn handtekinn í kjölfar þeirra. Þetta er í fyrsta sinn á þessu ári sem lögregla þarf að hafa bein afskipti af mótmælendum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×