Innlent

Vísitala íbúðaverðs hækkar

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði í júní um 0,6 prósent frá því í mánuðinum áður.

Síðastliðna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,6 prósent en undanfarna sex mánuði hefur hækkunin numið 5,9 prósentum. Þá hefur vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkað um rúm þrettán prósent síðastliðna tólf mánuði.

Fasteignamat ríkisins birtir vísitölu íbúðaverðs til að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem fyrir liggja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×