Innlent

Lyfið Glivec getur valdið hjartabilun

LYF Upplýsingar á fylgiseðlum lyfja sem seld eru á Íslandi eru ekki í öllum tilfellum tæmandi.
LYF Upplýsingar á fylgiseðlum lyfja sem seld eru á Íslandi eru ekki í öllum tilfellum tæmandi. MYND/Nordicphotos/Getty Images

Lyfið Glivec, sem er gefið hér á landi við hvítblæði, getur skemmt hjartavöðvavef og valdið alvarlegri hjartabilun, samkvæmt nýrri rannsókn Thomas Jefferson-háskólans í Fíladelfíu. Niðurstöður hennar leiddu í ljós að tíu sjúklingar sem tóku þátt í rannsókninni og höfðu ekki átt við hjartatengda kvilla að etja, reyndust með hjartabilun eftir Glivec-lyfjameðferð.

Á íslenskum fylgiseðli lyfsins er varað við notkun þess til þeirra sem hafa nú þegar greinst með hjartasjúkdóm, en ekki sagt að lyfið geti mögulega stuðlað að hjartasjúkdómum. Þar, og á vinsælum íslenskum heimasíðum, t.d. doktor.is, er algengustu aukaverkunum lyfsins lýst sem vægri ógleði og uppköstum.

Björg Árnadóttir, markaðsstjóri Novartis, sem selur lyfið á Íslandi, segir að vitað hafi verið um hjartaeitrandi áhrif lyfsins síðan í september 2005 og að minnst sé á þau í ákveðinni samantekt um eiginleika lyfsins, þótt ekki sé það gert á fylgiseðlinum sjálfum. Samantektin sé aðgengileg almenningi.

Björg sagði jafnframt að Novartis sæi ekki ástæðu til að bregðast sérstaklega við að svo stöddu, enda geti fyrirtækið ekki breytt fylgiseðlum, nema ákvörðun um það komi frá EMEA, Lyfjastofnun Evrópu.

Lars Damstrup, sérfræðingur Novartis í Danmörku, tekur í sama streng og segir ekkert nýtt í rannsókninni; að hjartabilun vegna lyfsins sé „afar fágæt“ meðan jákvæð áhrif lyfsins séu „feikilega mikil“.

Lyfið er eftir sem áður talið vera eitt besta lyf gegn hvítblæði sem til er og

Dr. Thomas Force, sem stýrði bandarísku rannsókninni, tók fram að honum þætti lyfið „afbragðsgott“ og að sjúklingar sem þyrftu á því að halda ættu ekki að hætta á því að órannsökuðu máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×