Innlent

Skemmtibátar fá þorskkvóta

við veiðar Fiskistofa fékk allnokkur símtöl þar sem menn furðuðu sig á því að þeir skyldu fá úthlutað kvóta.
við veiðar Fiskistofa fékk allnokkur símtöl þar sem menn furðuðu sig á því að þeir skyldu fá úthlutað kvóta. MYND/KK

Nokkrir eigendur skemmtibáta fengu tilkynningu frá Fiskistofu í vor um að þeir hefðu fengið úthlutað þorskkvóta án þess að stunda neinar fiskveiðar. Fengu þeir heimild til að veiða nokkur kíló á ári upp í sex tonn. Hleypur verðmæti kvótans á hundruðum þúsunda króna sé hann seldur.

Auðunn H. Ágústsson, forstöðumaður veiðiheimildasviðs Fiskistofu, segir að tæplega 500 fiskiskip undir 200 tonnum hafi fengið þennan rétt, sem til vannst fyrir nokkrum árum. Einhverjir bátanna hafi síðan verið seldir og breytt í skemmtibáta. Eigendur þeirra geti selt skipum með veiðileyfi kvótann eða útvegað sér sjálfir veiðileyfi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Auðunn segir allnokkra aðila hafa haft samband og furðað sig á að eiga skyndilega kvóta í þorski. Í einhverjum tilfellum hafi seljandi haft það ákvæði í kaupsamningi að allur mögulegur framtíðarkvóti yrði eign seljanda. „Fyrir aðra er þetta vissulega nokkur lukkupottur.“

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir þetta ekki koma á óvart. „Við vöruðum við þessu. Þetta má rekja til breytinga sem gerðar voru þegar ákveðið var að skipta kvóta milli þeirra sem höfðu eingöngu kvóta í þorski, enda flestir orðið fyrir skerðingu. Ekkert tillit var tekið til að ýmsir eru fyrir löngu hættir veiðum í atvinnuskyni.“

Breytingin sem Örn vísar til var samþykkt á Alþingi í vor. Í kjölfarið fengu eigendur bátanna tilkynningu um kvótaeign sína óháð því hvort skipin voru enn nýtt sem fiskiskip eða ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×