Innlent

Beðið eftir leyfinu

framkvæmdir í vatnsmýrinni Framkvæmdum við nýja bensínstöð Esso í Vatnsmýrinni hefur verið hætt tímabundið.
framkvæmdir í vatnsmýrinni Framkvæmdum við nýja bensínstöð Esso í Vatnsmýrinni hefur verið hætt tímabundið. MYND/Pjetur

Borgaryfirvöld fóru fram á í síðustu viku að framkvæmdum á lóð nýrrar bensínstöðvar Esso í Vatnsmýrinni yrði hætt.

Bæði Esso og borgin standa fyrir framkvæmdum á reitnum og því var ákveðið að nota sama verktakann í verkið. Þegar verktakinn hóf vinnu á þeim hluta lóðarinnar sem tilheyrir Esso fóru borgar­yfirvöld fram á að því yrði hætt þar sem enn hefur ekki verið veitt leyfi fyrir framkvæmdum við væntanlega bensínstöð.

Umrædda lóð fékk olíufélagið úthlutaða á sínum tíma í staðinn fyrir lóð sína við Geirsgötu, sem fer undir fyrirhugað tónlistarhús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×