Innlent

Lýsa stuðningi við formann

Sigursteinn Másson
Sigursteinn Másson

Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullum stuðningi er lýst við formann bandalagsins, Sigurstein Másson. Harmar stjórnin persónugerða gagnrýni í fjölmiðlum frá hendi tveggja af þrjátíu fulltrúum aðalstjórnar á hann og störf stjórnar.

Í yfirlýsingunni kemur fram að fullur vilji hafi verið frá upphafi að semja við Arnþór Helgason um starfslok hans í anda samþykktar aðalstjórnar, og er hann hvattur til að ganga til samninga. Málflutning Guðmundar S. Johnsen, Guðmundar Magnússonar og Arnþórs Helgasonar telur framkvæmdastjórn ÖBÍ ómálefnalegan og skaðlegan ímynd bandalagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×