Kauphöllin
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 78 ›
Rannsókn á dótturfélagi Eimskips lokið Danska samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að hætta rannsókn sinni í máli Atlantic Trucking, sem er danskt dótturfélag í eigu Eimskipafélags Íslands. Húsleit var gerð hjá félaginu í júní á síðasta ári. Viðskipti innlent 7.7.2023 15:14
Verðmat Reita enn langt yfir markaðsvirði Verðmat Jakobsson Capital á Reitum lækkaði lítillega á milli ársfjórðunga. Verðmatið er um 54 prósentum hærra en markaðsvirðið. Raunvöxtur í leigutekjum var tvö prósent á milli ára. Sennilega standa hóteleignir á baki við hluta rauntekjuvaxtar milli ára. Reitir eru þyngstir í hóteleignum af öllum fasteignafélögunum. Innherji 7.7.2023 07:01
Icelandair gengur frá pöntun á allt að 25 Airbus A321XLR þotum Icelandair og Airbus hafa undirritað samning um kaup flugfélagsins á þrettán langdrægum Airbus A321XLR farþegaþotum og kauprétt á tólf slíkum til viðbótar. Samnningurinn kemur í kjölfar viljayfirlýsingar þess efnis sem gefin var út í apríl síðastliðnum. Áætlað er að afhending hefjist árið 2029 en kaupverð er trúnaðarmál milli samningsaðila. Viðskipti innlent 6.7.2023 12:05
Að fá betra verð með því að bjóða betra verð Ágæt regla sem almennir fjárfestar geta tileinkað sér er að nota ekki svokölluð markaðstilboð við kaup og sölu nema að vel ígrunduðu máli, þar sem þau fela í sér að viðkomandi tekur hagstæðasta tilboði – sama hvaða verð eru í boði. Umræðan 6.7.2023 10:43
Sætanýtingin 86 prósent en stundvísin undir markmiðum Heildarfjöldi farþega Icelandair var 519 þúsund í nýliðnum júnímánuði, 20 prósent fleiri en í júní í fyrra þegar farþegar voru 431 þúsund. Samtals hafa 1,8 milljónir farþega ferðast með félaginu á fyrri helmingi ársins, 31 prósent fleiri en á sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 6.7.2023 09:00
Greiddi næstum fjórðung af sjóðnum í arð vegna sölu á Tempo og Mílu Arðgreiðslusjóður Stefnis greiddi 23,5 prósent af heildarstærð sjóðsins í arð til sjóðsfélaga um síðustu mánaðarmót. Þetta háa hlutfall má rekja til þess að Origo seldi Tempo og Síminn seldi Mílu og var afrakstur sölunnar greiddur til hluthafa. Arðgreiðslur vegna þessara tveggja félaga telja tæplega 90 prósent af öllum arði til sjóðsins á nýliðnu arðgreiðslutímabili. Innherji 6.7.2023 07:00
Styrkás verður „töluvert“ umsvifameira við skráningu í Kauphöll Horft er til þess að Styrkás, eignarhaldsfélag Skeljungs og Kletts, verði „töluvert“ umsvifameira við skráningu þess í Kauphöll fyrir árslok 2027, að sögn forstjóra Skel fjárfestingafélags. Tækifæri eru til ytri vaxtar á sviði orku og efnavöru, tækjum og búnaði, umhverfi, iðnaði og eignaumsýslu. Innherji 5.7.2023 08:43
Félag Róberts minnkar stöðu sína í Lotus með sölu upp á 33 milljarða Fjárfestingafélagið Aztiq, stærsti hluthafi Alvotech og stýrt af Róberti Wessman, hefur lokið við sölu á helmingi af nærri tuttugu prósenta hlut sínum í samheitalyfjafyrirtækinu Lotus í Taívan fyrir samtals jafnvirði um 33 milljarða króna. Hluturinn var seldur á um átta prósenta lægra verði en nam síðasta dagslokagengi Lotus. Aztiq hefur lýst því yfir að félagið áformi að leggja aukna fjármuni til að styðja við rekstur Alvotech og hefur hlutabréfaverð þess núna rétt úr kútnum og hækkað um meira en fjórðung á síðustu tveimur viðskiptadögum. Innherji 3.7.2023 10:29
Stjórn Regins fellur ekki frá yfirtökutilboði í Eik Stjórn fasteignafélagsins Regins hyggst standa við áform sín um að leggja fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar. Stjórnir fasteignafélaganna Reita og Eikar tilkynntu á föstudag að þær hafi samþykkt að ganga til samrunaviðræðna. Viðskipti innlent 3.7.2023 09:26
Ný stjórn kosin á hluthafafundi Stjórn Íslandsbanka hefur boðað til hluthafafundar í lok mánaðar þar sem kosið verður í stjórn, varastjórn og embætti formanns stjórnar auk þess sem fjallað verður um sátt bankans við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Viðskipti innlent 2.7.2023 14:01
Reitir og Eik kanna sameiningu Stjórnir fasteignafélaganna Eikar og Reita hafa samþykkt að ganga til viðræðna um mögulega sameiningu félaganna. Fasteignafélagið Reginn gerði nýverið yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar en stærsti eigandi félagsins lagðist gegn tilboðinu. Vill stjórn Eikar kanna hvort grundvöllur sé fyrir samruna við Reiti sem væri hluthöfum hagfelldari en fyrirhugað yfirtökutilboð. Viðskipti innlent 30.6.2023 16:36
Öll félög hækkað eftir Alvotech vendingar Gengi allra skráðra félaga í Kauphöll Íslands hefur hækkað það sem af er degi eftir miklar lækkanir í gær. Líftæknifyrirtækið Alvotech er hástökkvari dagsins með 14,30 prósent hækkun en næst á eftir koma Sýn með 6,67 prósenta hækkun og Skel með 6,09 prósent. Þá hefur velta markaðarins verið umfram meðaltal mánaðarins bæði í dag og í gær. Viðskipti innlent 30.6.2023 14:54
Fjárfestingafélag Róberts að selja í Lotus fyrir meira en 30 milljarða Fjárfestingafélagið Aztiq, aðaleigandi Alvotech og stýrt af Róberti Wessman, er að klára sölu á um helmingi af tæplega tuttugu prósenta eignarhlut sínum í samheitalyfjafyrirtækinu Lotus í Taívan. Áætla má að félagið muni fá um 250 milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut við söluna en Róbert hefur sagt að Aztiq muni leggja Alvotech til frekari fjármuni til að styðja við reksturinn vegna tafa á markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Hlutabréfaverð íslenska líftæknifélagsins hefur rokið upp um meira en tíu prósent í morgun. Innherji 30.6.2023 10:26
Lægra olíuverð dró niður afkomu Haga Hagnaður Haga dróst saman um 30 prósent á milli ára og nam 653 milljónum króna á fyrsta árfjórðungi. Stjórnendur segja að á tímabilinu sem sé til samanburðar hafi afkoman verið „óvenju sterk“. Í ljósi þess að heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði töluvert á milli ára, en það leiðir til lægri framlegðar af sölu til stórnotenda, dróst rekstrarhagnaður Olís saman um 63 prósent á milli ára. Innherji 29.6.2023 13:02
Tafir á innkomu á Bandaríkjamarkað þurrkar út 25 milljarða af virði Alvotech Hlutabréfaverð Alvotech hefur fallið um liðlega sjö prósent eftir að ljóst varð seint í gærkvöldi að umsókn íslenska líftæknilyfjafélagsins um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sitt stærsta lyf yrði ekki samþykkt að svo stöddu af hálfu Matvæla- og lyfjaeftirlitsins (FDA) þar í landi. Áætla má að handbært fé Alvotech geti numið yfir 180 milljónum Bandaríkjadala miðað við áform stærsta hluthafans um að leggja því til aukið fjármagn til að standa straum af kostnaði við rekstur og fjárfestingar á komandi mánuðum. Innherji 29.6.2023 11:26
Greinendur mjög ósammála um virði skráðu fasteignafélaganna Íslenskir hlutabréfagreinendur hafa mjög ólíkar skoðanir á því hvernig meta skuli virði skráðu fasteignafélögin en himinn og haf aðskilur verðmatsgengi IFS greiningar annars vegar og Jakobsson Capital hins vegar. Innherji 28.6.2023 15:06
Boðað til hluthafafundar í lok júlí Finnur Árnason, formaður stjórnar Íslandsbanka, segir að boðað verði til hluthafafundar bankans þann 28. júlí. Hann segir síðustu daga hafa verið erfiða. Nýr bankastjóri er tekinn við. Viðskipti innlent 28.6.2023 11:59
Hlutabréfaverð ISB réttir úr kútnum við brotthvarf Birnu Gengi hlutabréfa Íslandsbanka, sem hafði fallið skarpt fyrstu tvo daga vikunnar, hefur hækkað um meira en þrjú prósent í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Gengishækkunin kemur í kjölfar þess tilkynnt var um það fyrr í nótt að samið hefði verið um starfslok Birnu Einarsdóttur eftir að bankinn braut fjölmörg lög og innri reglur félagsins við sölu á hlutum í sjálfum í útboði ríkisins í fyrra. Innherji 28.6.2023 10:44
Ekkert lát á sölu fjárfesta úr sjóðum samtímis verðlækkunum á markaði Fjárfestar héldu áfram að losa um eignir sínar í helstu verðbréfasjóðum í liðnum mánuði, meðal annars þeim sem kaupa í hlutabréfum, samhliða því að gengishrun bréfa Marels tók Úrvalsvísitöluna niður um nærri þrettán prósent. Eftir miklar verðlækkanir á markaði og innlausnir fjárfesta þá hafa eignir hlutabréfasjóða ekki verið lægri í meira en tvö ár. Innherji 27.6.2023 10:06
Fjárfestar efast um að rekstur Marels batni jafn hratt og stjórnendur áætla Hlutabréfaverð Marels hefur haldið áfram að lækka eftir uppgjör fyrsta ársfjórðungs sem olli vonbrigðum. Lækkunin er umtalsvert meiri en lækkun markaðarins í heild en fjárfestar efast um að rekstur félagsins muni snúast jafn hratt við og stjórnendur Marels vænta. „Það er augljóslega verið að skortselja bréfin,“ segir viðmælandi Innherja. Innherji 26.6.2023 15:36
Framlegð Sýnar „kom á óvart“ en félagið metið 60 prósentum yfir markaðsvirði Hörð samkeppni á fjarskiptamarkaði þýðir að „erfitt er að velta launahækkun og hærra innkaupaverði út í verð þjónustu,“ að sögn greinenda, en rekstrarhagnaður Sýnar jókst á fyrstu þremur mánuðum ársins þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður. Félagið er verulega undirverðlagt á markaði samkvæmt nýrri hlutabréfagreiningu. Innherji 20.6.2023 13:24
Selja allan fimmtungshlut sinn í fjárfestingafélaginu Streng Félög sem er stýrt af fjárfestunum Jóni Ásgeir Jóhannessyni og Sigurði Bollasyni hafa stækkað óbeinan eignarhlut sinn í SKEL fjárfestingafélagi eftir að hafa keypt samanlagt tuttugu prósenta hlut í Strengi. Seljendur bréfanna eru viðskiptafélagarnir Þórarinn Arnar Ævarsson og Gunnar Sverrir Harðarson en þeir fá meðal annars afhend bréf í Kaldalón í viðskiptunum og eru nú orðnir einir stærstu hluthafar fasteignafélagsins. Innherji 20.6.2023 09:17
Verðmat Sjóvar lækkaði lítillega en er umtalsvert yfir markaðsvirði Verðmat Jakobsson Capital á Sjóvá lækkaði lítillega milli ársfjórðunga í ljósi dekkri horfa fyrir reksturinn í ár. Stjórnendur félagsins eru „örlítið dekkri á tryggingarreksturinn“ nú en við áramót, segir í verðmatinu. Það er engu að síður 22 prósent yfir markaðsvirði um þessar mundir. Innherji 16.6.2023 13:53
Verðmatið á Regin áfram langt yfir markaðsgengi Nýjasta verðmat Jakobsson Capital á fasteignafélaginu Reginn hljóðar upp á 38,6 krónur á hlut sem er 58 prósentum yfir markaðsgengi félagsins í dag. Ef samruni Regins og Eikar gengur í gegn myndi verðmatið hækka í allt að 41 krónu vegna samlegðaráhrifa og þá á eftir að taka mögulegan söluhagnað á fasteignum með í reikninginn. Innherji 15.6.2023 12:53
Fimm sjóðir keyptu nær helming seldra bréfa í útboði Hampiðjunnar Íslenskir lífeyrissjóðir voru fyrirferðamestir í hlutafjárútboði Hampiðjunnar sem lauk í byrjun þessa mánaðar og keyptu stóran hluta þeirra bréfa sem var úthlutað til stærri fjárfesta. Þar munaði mestu um LSR sem er kominn í hóp allra stærstu hluthafa veiðarfæraframleiðandans eftir kaup sjóðsins. Innherji 15.6.2023 10:14
Mikill meirihluti hluthafa VÍS samþykkti kaup á Fossum Mikill meirihluti hluthafa VÍS hefur samþykkt tillögu stjórnar tryggingafélagsins að kaupa Fossa fjárfestingabanka. Þriðji stærsti hluthafi félagsins, lífeyrissjóðurinn Gildi, hafði lagst gegn kaupunum í aðdraganda fundarins. Innherji 14.6.2023 17:04
Hampiðjan komin á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi Hlutabréf í Hampiðjunni voru í dag tekin til við skipta á aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi. Félagið hefur verið skráð félag á Íslandi síðan 1993, þar af síðastliðin sautján ár á Nasdaq First North vaxtarmarkaðnum. Viðskipti innlent 9.6.2023 13:21
Verðlagning íslenskra banka leitar í sama horf og norrænna Snörp gengislækkun á undanförnum mánuðum veldur því að markaðsvirði íslenskra banka er nú orðið sambærilegt og bókfært virði eiginfjár. Lækkunin helst í hendur við meðaltalsþróun hjá fimm stærstu bönkum á hinum Norðurlöndunum, að sögn sjóðstjóra, en það má rekja til þess að horfur séu á minni arðsemi, hægari vöxt í vaxtartekjum, meiri kostnaði og aukinnar áhættu í rekstri. Innherji 9.6.2023 08:29
Eitt félag í stað tveggja gæti verið „áhugaverðari fjárfestingakostur“ Samruni Regins og Eikar gæti ýtt undir meiri áhuga fjárfesta á félögunum, að mati sjóðstjóra lífeyrissjóðs sem fer með stóran hlut í báðum fyrirtækjum, en markaðsvirði fasteignafélaga er langt undir upplausnarvirði þeirra. Ekki kæmi óvart ef fleiri sambærileg tíðindi myndu berast á næstu tólf mánuðum, að sögn hlutabréfagreinenda. Innherji 8.6.2023 16:19
Nýtur stuðnings stóru sjóðanna en óvíst með afstöðu Brimgarða Hópur fjárfesta sem ræður yfir talsverðum meirihluta hlutafjár í Eik, einkum lífeyrissjóðir, hefur í markaðsþreifingum sem hófust fyrr í vikunni tekið jákvætt í yfirtökutilboð Regins en íslensku fasteignafélögin hafa átt undir högg að sækja á hlutabréfamarkaði um nokkurt skeið. Langsamlega stærsti hluthafi Eikar er fjárfestingafélagið Brimgarðar, með rúmlega fjórðungshlut, en með sameinuðu félagi er meðal annars horft til þess að ná fram hagstæðari fjármögnun og meira floti á bréfum þess. Innherji 8.6.2023 13:28