Innlent

Búast má við hvassviðri á landinu í dag

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Veðurstofan hefur varað við stormi um landið austanvert í dag.
Veðurstofan hefur varað við stormi um landið austanvert í dag. Vísir/Vilhelm
Kröpp lægð skammt norðaustur af landinu mun stjórna veðrinu í dag með köldum norðvestan- og vestanáttum. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Stormur verður um landið austanvert og jafnvel rok um tíma eftir hádegi og víða hvassir vindstrengir við fjöll. Hægari vindur verður vestantil á landinu. Snjókoma og síðar él norðantil, en dálítil él fram eftir degi sunnan- og vestanlands. Dregur úr vindi og ofankomu í kvöld og nótt. Gengur í stífa suðaustanátt á morgun með snjókomu eða slyddu, fyrst suðvestantil. Rigning um landið suðvestanvert síðdegis á morgun, en þar hlýnar heldur.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hætt sé við sandfoki á íshröngli ofan af jökli við Jökulsárlón og að búast megi við talsverðu hríðarveðri og kófi frá Skagafirði og austur á Tjörnes.

Veðurhorfur á landinu

Vestlægátt, víða 10-18 m/s og dálitil él, en þurrt að kalla austantil á landinu. Norðvestan 15-23 með morgninum, hvassast um landið austanvert, en 20-28 austantil síðdegis. Snjókoma og síðar él um landið norðanvert, en úrkomulítið sunnantil. Dregur úr vindi og éljum í kvöld og nótt. Hiti kringum frostmark. Gengur í suðaustan 10-18 á morgun með snjókomu eða slyddu, fyrst suðvestantil, en rigning sunnan- og vestanlands síðdegis og hlýnar heldur.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Austan og norðaustan 10-15 m/s á Vestfjörðum og annesjum N-lands, annars hægari vindur. Rigning eða slydda N-til, en smáskúrir á S-verðu landinu. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst.

Á föstudag:

Suðaustan 8-15 m/s, víða rigning og hiti 3 til 8 stig, en slydda eða snjókoma fram eftir degi NA-lands og hiti nálægt frostmarki.

Á laugardag:

Norðaustan 8-15 m/s og rigning eða slydda NV-til. Annars hæg suðlæg átt og dálítil rigning, en yfirleitt þurrt á NA- og A-landi. Hiti 1 til 7 stig.

Á sunnudag:

Norðanátt og snjókoma eða él N-til á landinu, en léttskýjað S-lands. Kólnandi veður.

Á mánudag:

Norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en él við NA-ströndina. Fremur kalt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×