Innlent

Nauðgunartilraun í Breiðholti

Ráðist var á tuttugu og tveggja ára konu klukkan fögur í fyrri nótt í Breiðholti. Konan var á leið til vinnu þegar maður ógnaði henni með hníf og keyrði hana í götuna þar sem hann reyndi að nauðga henni. Konan náði að sleppa frá manninum og hringja í 112. Konan sá manninn illa en gaf lögreglu lýsingu af honum eftir bestu getu. Tveir voru yfirheyrðir í gær en var sleppt þar sem báðir höfðu fjarvistarsönnun. Málið er enn í rannsókn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×