Innlent

Kertafleyting á Tjörninni

Mynd/E.Ól
Kertum var fleytt á Tjörninni í Reykjavík í gærkvöldi til minningar um fórnarlömb kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki í Japan. Kertafleytingin er fyrir löngu orðinn árviss atburður á Íslandi en um þessar mundir er liðið 61 ár síðan Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengjum á borgirnar tvær og fórst á þriðja hundrað þúsund manna í árásunum. Mikill fólksfjöldi fylkti liði niður að tjörninni til að sýna samstöðu gegn stríði og leggja áherslu á frið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×