Innlent

Vonsvikinn með úrskurð eignarnámsnefndar

Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar hefur verið gert að greiða húsasmiði á Akranesi sjö og hálfa milljón króna í bætur fyrir landspildu sem hitaveitan tók eignarnámi.

Landsspildan sem Hitaveita Akranes og Borgarnes tók eignarnámi er 3000 fermetrar. Hitaveitan bauð eiganda lóðarinnar, húsasmiðnum Hjörleifi Jónssyni, 600 þúsund krónur fyrir landið en því boði tók Hjörleifur heldur benti á að hægt væri að byggja fimm parhús á lóðinni. Sanngjörn greiðsla fyrir lóðina væru 50 milljónir króna

Málið komst í hnút og nú hefur matsnefnd eignarnámsbóta úrskurðað að Hitaveitan skuli greiða Hjörleifi sjö og hálfa milljón krónur fyrir lóðina. Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður Hitaveitu Akraness og aðstoðarforstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir niðurstöðu nefndarinnar vonbrigði.

Ásgeir segir ástæðu eignarnámsins vera dælustöð sem standi á lóðinni. Nýr eigandi hafi krafið hitaveituna um mun hærri leigu en áður sem ekki hafi náðst sátt um. Því hafi Hitaveitan nýtt sér rétt sinn til að taka lóðina eignarnámi.

Í úrskurði eignarnámsnefndarinnar segir að með tilkomu Hvalfjarðarganganna séu Akraness og Reykjavík á sama markasvæði; verð á fasteignum á Akranesi sé orðið sambærilegt við verð á fasteignum í úthverfum Reykjavíkurborgar.

Því er Ingi Tryggvason, löggildur fasteignasali á Akranesi, ekki sammála. Hann mat lóðina á fjögur til fimm hundruð þúsund fyrir tveimur árum og sagðist í samtali við NFS standa við það mat.

Hann segir ekki hægt að bera fasteignaverð í Reykjavík og Akranesi saman. Sjö og hálfa milljón fyrir 3000 fermetra lóð í nágrenni Akranesbæjar sé einfaldlega út í hött.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×