Innlent

Virða ekki hæðatakmarkanir

Flutningabílar með háfermi óku sex sinnum á hæðarslár, við brúarbygginguna á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvega frá því um tvö leitið í fyrrainótt þar til um tvö leitið í nótt. Að sögn lögreglu er í nokkrum tilvikum vitað hverjir voru á ferð, en í öðrum ekki. Slárnar skemmdust talsvert, en ökumennirnir náðu að stöðva bíla sína áður en þeir ækju á uppsláttinn undir brúnni sjálfri. Slárnar eru svipaðar þeim, sem eru við Hvalfjarðagöng og hvað eftir annað hefur verið ekið á að undanförnu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×