Innlent

Óhapp í Hvalfjarðargöngum

Umferðarslys varð í Hvalfjarðargöngunum laust eftir klukkan fimm síðdegis í gær. Engin slys urðu á fólki en umferð var afar gekk afar hægt í gegnum göngin á tíma.

Tvennt var í fólksbílnum sem var ekið utan í gangavegginn í göngunum norðanverðum. Ekki er vitað hvað olli slysinu. Fólkið var flutt til Reykjavíkur á slysadeild en ekkert reyndist ama að því.

Göngunum var ekki lokað en umferð var stjórnað þannig að bílum á leið í suður og norður var hleypt í gegn til skiptis. Opnað var í báðar áttir skömmu eftir klukkan sjö í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×