Innlent

Hlaut meiðsl á höfði í bílveltu

Erlend kona á fertugsaldri slasaðist á höfði þegar hún velti bíl sínum á Landvegi norðan við Búrfell um tvöleytið í gær. Konan, sem var á ferð ásamt eiginmanni sínum, ók bílaleigubíl og missti stjórn á honum með fyrrgreindum afleiðingum. Eiginmaðurinn slasaðist minna.

Konan var flutt rakleiðis með sjúkrabíl á slysadeild í Reykjavík til skoðunar. Meiðsl hennar eru ekki meiriháttar. Bíllinn endaði á hvolfi og að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli er hann ónýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×