Innlent

Eimskip gæti fengið milljarð króna í sekt

Uppskipun í Sundahöfn Nú hyllir undir lok rannsóknar samkeppnisyfirvalda á meintum brotum Eimskipafélagsins á samkeppnislögum, en rannsóknin hófst haustið 2002. Síðan þá hefur félagið skipt um eigendur og stjórn.
Uppskipun í Sundahöfn Nú hyllir undir lok rannsóknar samkeppnisyfirvalda á meintum brotum Eimskipafélagsins á samkeppnislögum, en rannsóknin hófst haustið 2002. Síðan þá hefur félagið skipt um eigendur og stjórn. MYND/GVA

Rannsókn samkeppnis­­yfirvalda á meintum ólögmætum starfsháttum Eimskipafélagsins er á lokastigi og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er búist við niðurstöðu á haustmánuðum.

Eimskip hefur gögn Samkeppnis­­eftirlitsins til skoðunar og á eftir að koma að andmælum sínum, en í þeim er samkvæmt heimildum blaðsins gert ráð fyrir því að Eimskip verði sektað um sem nemur einum milljarði króna.

Rannsóknin hófst með húsleit Samkeppnisstofnunar í skrifstofum Eimskipafélagsins í Reykjavík í septemberbyrjun 2002, eftir kæru Samskipa í ágústlok sama ár. Samskip vildi að kannað yrði hvort Eimskipafélagið hefði brotið gegn samkeppnislögum í flutninga­starfsemi sinni, meðal annars með undirboðum og misnotkun á markaðsráðandi stöðu í sjóflutningum.

Samkomulag var um það gert milli málsaðila að Eimskip fengi eitt að sjá niðurstöður rannsóknar­innar og koma að andmælum áður en endanleg niðurstaða yrði kynnt.

Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips, staðfestir að lögfræðingar félagsins hafi niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins til skoðunar. Hann segir málið nokkuð flókið og enn mikla óvissu um endanlega niðurstöðu þess og því ekki tímabært að tjá sig um það efnislega.

Síðan rannsóknin á meintum brotum Eimskipafélagsins hófst hafa orðið eigendaskipti á félaginu, auk þess sem skipt hefur verið um stjórnendur. Vaknar því spurning um hvar ábyrgðin liggi, verði niðurstaðan á endanum sú að félagið hafi brotið gegn samkeppnislögum og þurfi að greiða sekt. Burðarás keypti Eimskipa­félagið hf. og síðan var, við samruna Burðaráss við Straum, gerð sérstök niðurfærsla vegna rannsóknarinnar. Í dag er Eimskip eitt dóttur­félaga Avion Group, en Avion keypti Eimskip í maí í fyrra.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að mál Eimskipafélagsins sé enn til rannsóknar hjá stofnuninni en kveðst hvorki vilja tjá sig um hvar rannsóknin sé stödd eða hvenær henni kunni að ljúka. Þegar þar að kemur segir hann niðurstöðu stofnunarinnar verða birta á vef hennar, samkeppni.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×