Innlent

Borgarráð samþykkir nýtt ráð

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær tillögu stjórnkerfisnefndar um stofnun sérstaks leikskólaráðs sem fer með málefni leikskólanna og daggæslu, en þau mál voru áður voru í höndum menntaráðs. Verði tillagan samþykkt í annað sinn á næsta fundi borgarráðs mun aðskilnaðurinn ganga í gegn og nýtt fagsvið hjá Reykjavíkurborg, leikskólasvið, vera stofnað.

Árni Þór Sigurðsson, fulltrúi Vinstri grænna, sagði á fundinum að engin haldbær rök væru fyrir aðskilnaðnum og engin fagleg umræða um málið hefði farið fram. Ólafur F. Magnússon, áheyrnarfulltrúi F-lista, tók í sama streng.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×