Innlent

Klippt af 53 bifreiðum

Samanlagt hefur lögreglan í Reykjavík klippt skráningarnúmer af 53 ökutækjum í borginni að undanförnu.

Eigendur ökutækjanna sem klippt er af hafa ýmist trassað að láta skoða bifreiðina eða borga iðgjöld trygginga.

„Ekki er um sérstakt átak að ræða heldur notum við kvöldin í miðri viku, þegar alla jafna er lítið að gera, og klippum af bifreiðum á meðan við sinnum eftirliti í hverfum borgarinnar,“ segir Sigurður Sigurgeirsson, settur aðalvarðstjóri lögreglunnar í Reykjavík. „Með því sláum við tvær flugur í einu höggi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×