Innlent

Bílprófið ellefu daga gamalt

Sautján ára piltur mældist á 141 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Stekkjarbakka um ellefuleytið á sunnudagskvöld. Leyfilegur hámarkshraði á þessum stað er sjötíu kílómetrar á klukkustund. Ökumaður framvísaði ökuskírteini sínu, sem var ellefu daga gamalt.

Pilturinn ók Mercedes-Benz bifreið foreldra sinna og voru þau ekki par hrifin af aksturslagi pilts þegar lögregla hafði samband við þau. Það var til fyrirmyndar hvernig þau tóku á þessu, segir lögreglumaður sem var á vakt.

Ökumaðurinn má eiga von á tveggja mánaða ökuleyfissviptingu og sextíu þúsund króna fjársekt í kjölfarið.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×