Innlent

Kannar einkaframkvæmdir

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað nefnd sem á að kanna í hvaða tilfellum einkaframkvæmdir í samgöngumálum geti talist vænlegur kostur.

Á nefndin að marka stefnu um hvaða skilyrði þurfi að vera fyrir hendi til þess að einkaframkvæmdir geti farið fram og á hvaða hátt verði gengið til samninga við aðila sem tilbúnir eru til að fjármagna slíkar framkvæmdir. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, hefur verið skipaður formaður nefndarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×