Innlent

Bæjarstjóri í Fjallabyggð

Þórir Kristinn Þórisson
Þórir Kristinn Þórisson

Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum í vikunni að ráða Þóri Kristin Þórisson í starf bæjarstjóra. Fjallabyggð varð til við sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar nú í vor og er Þórir fyrsti bæjarstjóri hins nýja sveitafélags.

„Hugur minn og fjölskyldunnar er þegar í Fjallabyggð. Það eru mörg spennandi verkefni framundan, meðal annars vegna sameiningarinnar, gangagerðar og við að kynna nýtt sveitarfélag,“ segir Þórir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×